Aðalvalmynd

Könnun

Þegar þú skeinir þér ...

Leit

Innskráningar kubbur

Gagnasafn

Ömurlegur Eigandi !!Thelma Litla

Ég hef ekki verið að blogga mikið upp á síðkastið þar sem að ég nenni þessu ekki lengur en einhverstaðar verð ég að fá að kasta þessu frá mér !
Þannig er mál með vexti að ég og kærastinn minn höfum verið að leigja af náunga niðrí bæ, 120.000 kall á mánuði fyrir 60fm íbúð. Sem að er brjálæði en við þurftum að komast úr foreldra húsum.... Strákurinn sem á íbúðin virtist voða kammó og æðislegur náungi þegar við byrjuðum að leigja hjá honum... Svo þegar það kemur að því að lengja samningin þá neitar hann.... Ég hringi í byrjun ágúst (samningurinn rann út 1.sept) og við vildum lengja samningin um lengri tíma... Þá þverneitar hann því.... og ekki orð meir.. Ég spyr afhverju ? (mjög undrandi þar sem við höfum alltaf borgað á réttum tíma, aldrei hávaði og reglusamt par, fylgdum öllum reglum hans) Þá segir muldrar hann eitthvað fyrir munni sér og segist ætla að gera eitthvað við íbúðina... ekekrt persónulegt. Allt í lagi með það, þá sagði ég að hann fengi íbúðina afhenta 1.sept. Við byrjum að pakka og gera allt klárt í rólegheitum. Svo hringir hann í mig og spyr hvort við viljum leigja þarna áfram, en hann ætli að hækka leiguna. Ég neita þar sem að 60.000 á mann er alltof mikið fyrir okkur... Allt í góðu, við höldum áfram að pakka og hann hringir aftur, segist hafa talað við kærustuna sína og að það væri ekki sniðugt að ekki legja neinum íbúðina áfram, og spyr hvort við viljum legja áfram en þá hækkar leigan um 5.000 á mánuði... Ég segji þvert nei! þar sem að ég var ekki ánægð með viðbrögðin hans þegar við ætluðum að lengja samningin... og segji ákveðin að við förum úr íbúðinni 1.sept!

....Svo kemur að skila degi.... bamm bamm bamm...
Við helguðum heillri helgi í þrifin! Bæði að vinna kvöldvakt alla helgina, og nýttum daginn til þess að þrífa og kvöldin eftir vinnu! Íbúðin tandurhrein og ekki skít að sjá... ég renni við upp í íbuð til hans til að skila lyklunum og þá kemur upp djöfullinn í honum. "ÞAÐ ER EKKI NÓG AÐ RENNA BARA YFIR, ÞIÐ VERÐIÐ AÐ ÞRÍFA ALLA ÍBUÐINA VEL OG VANDLEGA"... Köld tuska slegin framan í mig.. "BÍDDU FYRIGEFÐU, VIÐ VORUM HEILA HELGI AÐ ÞRÍFA ALLT Í HÓLF OG GÓLF HÉRNA!" .... svo heldur hann áfram, spyr hvað við vorum að pæla að bora og negla í veggin, segir að gólfið í eldhúsinu sé ógeðslegt (og þegar við fengum afhenda íbúðina þá var dúkurinn í eldhusinu ógeðslegur og skítugur...fast... í honum skita..) ég svara jú fyrir mig og segji að gólfið i eldhusinu hafi verið viðbjóður frá fyrsta degi og að við hengdum upp gardínur og nokkrar myndir... "ÞIÐ ERUÐ BARA BÚIN AÐ VENJAST SKÍTNUM" segir hann.... kennir mér svo um að skilja eftir drasl (ég gleymdi hálfri klósett rúllu) ..... og svo vill hann að ég kaupi fyrir sig nytt dvd borð

Athugasemdir

1
Ása skrifar:
jiiii.. djö.. #$%#$& .. hefðuð bara átt að skila henni skítugri ;)
11. september 2008 klukkan 21:28
2
thelma skrifar:
yeps... kuka a golfin og shit
18. september 2008 klukkan 13:41

Skrifa athugasemd

..Golden Moles..

"Þarf þá ekki að taka eyrnakirtlana úr mér?" - Hélt þeir væru einnig til ásamt nef- og hálskirtlum..

"Það var Súrsætur Gíslason" - Gísli Súrson...

"Hoolah Koolah Short" - Lyrical Assoult..

ShitHeadz